Flemming Viðar Valmundsson
Harmóníkuleikari
Flemming Viðar Valmundsson (f.1995) er tónlistarmaður, sviðslistamaður og harmóníkuleikari. Hans helsta verkefni hefur verið að miðla nútímatónlist sem skrifuð hefur verið fyrir klassíska harmóníku með líflegri og einlægri sviðsframkomu.
Flemming lærði í Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn hjá Prof. Geir Draugsvoll og Andreas Borregaard. Hann er meðlimur í harmóníkutríóinu TriOssia, sem voru YCAT Finalists árið 2022 og komu fram í heimsfræga tónleikasalnum Wigmore Hall í London. Hann er líka helmingur útvíkkanlega post-instrumental dúettsins PAKK Collective, sem sérhæfir sig í að halda viðburði sem má út mörkin milli ótengdra listforma, eins og sviðslist og innstillingarlist sem blandað er saman við hið hefðbundna tónleikaform.
Sem einleikari hefur Flemming leikið konserta með Sinfóníuhljómveit Íslands, DKDM Sinfonietta, og LHÍ Sinfonietta. Þar að auki hefur hann frumflutt fjölda verka fyrir harmóníku og harmóníkuleikandi sviðslistamann sem tileinkuð hafa verið honum. Fyrir utan tónleikasalina hefur Flemming verið víðförla sem leikhúslistamaður, þá bæði í verðlaunuðum áhugamannauppsetningum sem og í stærri uppsetningum í Þjóðleikhúsinu. Að harmóníkunni frátaldri, hefur Flemming einnig leikið með fjöldamörgum hljómsveitum innan ýmissa tónlistarstefna á hvers kyns hljóðfæri.
Flemming er nú starfandi sem kennari í Kaupmannahöfn, samhliða post-graduate einleikaranámi sínu við Kongunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn.