Una Sveinbjarnardóttir

Fiðla

Una Sveinbjarnardóttir er konsertmeistari Kammersveitar Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af óperuflutningi og spilaði í hljómsveit Deutsche Oper á námsárum sínum í Berlín hjá Christian Thielemann og hefur síðan leitt hljómsveit Íslensku Óperunnar sálugu margsinnis. Hún hefur samið tónlist meðfram fiðluleik í fjölda ára, leikhús- bíó- og kammertónlist, og leikur reglulega með Strokkvartettinum Sigga, Siggi String Quartet en kvartettinn hlaut íslensku tónlistarverðlaunin árið 2019 og 2023. Hún hefur unnið með Björk, (Homogenic, Vulnicura, Fossora), Jóhanni Jóhannssyni, Atla Heimi, Ensemble Modern og fjölda tónlistarfólks og tónskálda sem fiðluleikari, tónsmiður og framleiðandi. Plötur hennar eru Fyrramál, með Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara, Umleikis, með eigin einleiksverkum, Last Song með píanóleikaranum Tinnu Þorsteinsdóttur og nú síðast Hik með dúóinu Translations. Plata Unu Ea Fantasia með eigin titilverki og íslenskum einleiksverkum kemur út í maí hjá Sono Luminus.

Previous
Previous

Jacek Karwan

Next
Next

Flemming Viðar