Jacek Karwan
Kontrabassi
Jacek Karwan stundaði nám við Universität der Künste í Berlín og Hochschule für Musik í Basel. Jacek hefur komið víða fram og m.a. leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Podlasie fílharmóníunni, Reykjavík Midsummer Music tónlistarhátíðinni, Sígildum sunnudögum og á Euro kammertónlistarhátíðinni.
Á námsárunum lék Jacek með hljómsveitum á borð við musicAeterna Orchestra, Gstaad Festival Orchestra, Gustav Mahler Jugendorchester, European Union Youth Orchestra, Pacific Music Festival Orchestra og Copenhagen Phil, Baltic Neopolis Orchestra og kom m.a. fram á BBC Proms, Edinborgarhátíðinni, Salzburger Festspiele og Schleswig-Holstein tónlistarhátíðinni. Hann hefur leikið undir stjórn þekktra stjórnenda, m.a. Sir Neville Marriner, Fabio Luisi, Neeme Järvi, Vladimir Ashkenazy, Teodor Currentzis og Philippe Jordan.
Jacek er einn af stofnendum Polish Soloist Ensemble og hefur verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi, meðal annars leikið með tónlistarhátíðinni Sumartónleikar í Skálholti, með Kammeróperan, með hljómsveit Íslensku óperunnar, með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, með Reykjavík Orkestra og með Elju kammersveit.
Hann er í virku samstarfi við pólska sendiráðið á Íslandi og heldur reglulega tónleika þar og kynnir pólska menningu á Íslandi. Jacek var áður leiðari við Gorzów fílharmóníuna en er nú fastráðinn hljóðfæraleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.