Adolf Smári Unnarsson
Leikstjóri og Þýðandi
Adolf Smári Unnarsson er leikstjóri, rithöfundur og leikskáld. Hann útskrifaðist frá Sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands árið 2019 og lauk meistaranámi í leikstjórn frá DAMU, sviðlistarakademíunni í Prag árið 2023. Síðustu ár hefur hann haslað sér völl sem einn afkastamesti leikstjóri sjálfstæðu senunnar á Íslandi, hafa sýningar hans hlotið samtals 11 tilnefningar til Grímuverðlaunanna og unnið tvenn. Af helstu verkum hans má t.d. nefna: „Brím“, „Undir“, „Kannibalen“, og „Ekkert er sorglegra en manneskjan“ sem allar voru sýndar í Tjarnarbíói ásamt leikritinu „Nokkur augnablik um nótt“ í Þjóðleikhúsinu.