Andri Unnarson

Búninga og leikmyndahönnuður

Andri Unnarson er hönnuður og listamaður sem starfar mestmegnis með textíl.Hann útskrifaðist með BA-gráðu í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og MA-gráðu frá Det Kongelige Akademi í Danmörku, með áherslu á endurnýtingu hráefna úr nærumhverfi. Hann vinnur að þróun aðferða hvað varðar endurnýtingu textíls á vinnustofu sinni í Kaupmannahöfn. Verk eftir Andra hafa verið sýnd á Hönnunarmars og Copenhagen Fashion Week, ásamt útstillingum í Magasin Du Nord og Riises Landsted. Undanfarið hefur hann í samstarfi við Karen Briem þróað stöðu sjálfbærnihönnuðar búninga innan atvinnuleikhúsa í sýningunum Temple of Appropriated Histories í Staatstheater Kassel, Parsifal í Staatsoper Hannover og núna Eddu í Þjóðleikhúsinu. Andri hefur einnig hannað sviðsklæðnað fyrir íslenskt tónlistarfólk, svo sem Hatara og Reykjavíkurdætur. Andri hlaut grímu tilnefningu fyrir búninga ársins á Grímunni 2025 fyrir búninga sem hann  hannaði og saumaði fyrir uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós 2025.

Previous
Previous

Adolf Smári Unnarsson

Next
Next

Anna Kjeldahl